Verið velkomin á lomber.is


Þú þarft að vera með Flash player uppsettan til að geta spilað myndbönd á síðunni.

Lomber var mikið spilað hér á árum áður, en bridsinn varð smám saman ofan á og kunna nú sífellt færri þetta göfuga spil. Með vefnum lomber.is er ætlunin að endurvekja lombermenninguna en á vefnum eru kennsluleiðbeiningar, spjallborðsumræður og þá er hægt að spila lomber við annað fólk yfir netið í sérsmíðuð lomber forriti.

Lomber.is er útskriftarverkefni Ingólfs Sigfússonar úr Margmiðlunarskólanum. Verkefnið samanstendur af þessari vefsíðu, vefumsjónarkerfinu Ófeigi, sem er bakendi vefsíðunnar, og Lomber forriti sem skiptist í tvennt, client og server. Nánar er fjallað um verkefnið undir liðnum Vefurinn.

Notendur geta stofnað sinn eigin aðgang að vefnum sem þeir nota til að spila í forritinu undir eigin nafni, og skrifa á spjallborðið.

Er það von mín að með vefnum og forritinu muni útbreiðsla Lombers og vinsældir hérlendis muni aukast verulega.

Góðar stundir